Jebbs laukrétt. Þriðjudagsmorgun, ég sit með kaffið í vinnunni og læt hugann reika. Það hefur stundum komið mér um koll að láta hugann reika of mikið. Ég hef lent í því að missa af hinu og þessu og vita ekkert hvað aðrir eru að tala um vegna ferðalagsins í hausnum á mér.
Holland valtaði yfir Ítalíu í gær, mikill bjór er í veði og eitthvað verður að lagast hjá Ítölum svo ég vinni bjórinn. Annars finnst mér Þýskaland ansi líklegt lið og er ég ekki að sjá þá misstíga sig eitthvað mikið. Ég spáði Þýskalandi og Ítalíu í úrslitaleiknum og ég stend bara við þá spá.
Spánverjar hefja leik í dag og verður fróðlegt að sjá þá, ég hef ekki mikla trú á þeim, en ég hafði nú ekki heldur mikla trú á Hollendingum fyrir mót og þeir virðast vera býsna góðir þannig hver veit.
Eyþór fór hamförum þegar Holland vann í gær, sendi mig grenjandi heim og ég grét mig svefn. Hrabba var á næturvakt þannig að ekki gat hún huggað mig. Ef Eyþór hefði vitað það hefði hann kannski hlíft mér, samt efast ég um það.
Later, Christian Slater
*Emmi Skemm uppfærir*
Nokkrar staðreyndir um Þrölla:
13. Þrölli er Möll.
13. Þrölli er líka 13.
13. Þrölli kann ekki að bakka bíl.
13. Þrölli er að hugsa um mat núna.
13. Þrölli er ættaður frá Borðeyri og Grenivík
13. Þrölli grætur sig stundum í svefn.
13. Þrölli er í rauninni bara lítill fugl innst inni.
13. Þrölli saknar stundum fuglavina sinna.
13. Þrölli er eini fuglinn í heiminum sem kann ekki að fljúga.
13. Þrölli heitir í raun skógarþröstur þó hann vilji ekki kannast við það.
13. Þrölli var einu sinni með gleraugu, ljótustu hárgreiðslu í heimi, moggatösku á hliðinni og hélt samt að hann væri töff.
13. Þá var Þrölli ekki töff.
13. Þrölli er samt töff í dag.
13: Þrölli á samt bróður sem er meira töff.
13. Það er ég.

Þarna má sjá Þröllann með derring eins og vanalega.