Karlaklúbburinn John McClane

Strákarnir á borginni og einn á Akureyri

28.08.2007 14:53:39 / Stebbi

Quiz!

Emmi er frekar glataður í þessum leik en það er ekki honum að kenna því hann er fííínn gaur..

Spurningin er í þrennu lagi:

Hver er þessi stelpa, hvaða mynd gerði hana þekkta og hvaða lag gerði hún þekkt?

TinyPic image

Sigurvin Guðmundssyni, dósent, er ekki leyft að svara þessari getraun þar sem ég hef lagt spurninguna fyrir hann áður..

Í verðlaun eru vinakoss frá Aroni og blautur koss frá Símoni - Jafnvel smá kúr með Emma þannig það er til mikils að vinna en samt ekki..


» 8 hafa sagt sína skoðun

27.08.2007 19:37:31 / Emmi

Hver er stjarnan? #2

Jæja þar sem Aron svaraði rétt strax í síðustu getraun þá ætla ég að koma með nýja nú þegar. Þessi verður mjög erfið. Spurt er um mann. Flestir sem lesa þetta hafa séð a.m.k eina mynd með honum. Allir mínir vinir hafa allavega séð mynd með honum og sú mynd var mjög vinsæl á sínum tíma. Í myndinni slóst hann mikið, og sagði hnyttna brandara inn á milli.

Þetta er maðurinn. Fleiri vísbendingar koma á morgun ef svar verður ekki komið.


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.08.2007 16:11:27 / Emmi

Double Risk

Nei hættu nú Jónas minn!

Íslenskar bíómyndir eru alltaf í sama stíl, hægar, þungar og dökkar. Aldrei nein gleði. Síðasta íslenska gamanmynd sem eitthvað er varið í er Sódóma. Hún er náttúrlega algjör snilld. Þór og Danni úr líf myndunum er það besta sem sést hefur í íslenskir kvikmyndagerð. Af hverju eru ekki gerðar svona myndir lengur? Gamanmyndir sem hægt er að hlægja af. Nú hef ég ekki séð nýjustu íslensku myndina, Astrópía, en hún gæti verið skítsæmileg þó ég hafi ekki mikla trú á henni.

Ég er að spá í að skrifa kvikmyndahandrit. Sú mynd yrði geðveikt fyndin og töff. Svo sendi ég Þránni Bertels handritið og læt hann gera myndina, enda er hann á bakvið bestu myndir íslands. Eða þá að ég fái Skara Skrípó til að gera hana, enda gerði hann sódóma. Djöfulli verður þetta góð mynd... 

 Hver er stjarnan?

Spurt er um mann sem dó ungur að árum. Hann var kvikmyndastjarna. Heimsfræg hljómsveit samdi lag um hann þar sem sagt var um hann: "to fast to live, to young to die". Titill lagsins bar nafn mannsins.

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

25.08.2007 15:15:07 / Emmi

Albino

Jæja Júlíus minn....

Nú er ég á leiðinni í bústað þar sem maður að nafni Símon heldur upp á fæðingardaginn sinn. Þar mun ég fyrirhitta marga furðufugla, t.d. Samma, Sóla, Stór-Sigurvin og Ævar. Ég held að Ævar öfundi mig mikið af mínu lífi því hann er alltaf með einhverja stæla. En ég tek því með miklu jafnaðargeði því ég veit að greyjið drengurinn á soldið bágt. Hann vill vel strákurinn en er greinilega staddur á krossgötum í lífinu er væntalega að velta fyrir sér hvort hann eigi að þora út úr skápnum. Ég skora á hann að gera það, og tek því fagnandi.

 Muna ekki allir eftir eldheita mexíkananum, bílnum hans Arons? Því miður er hann látinn. 2 mín þögn.....

Hann var skemmtilegur karakter hann Mexi. En maður kemur í manns stað og eins dauði er annars manns brauð. Nú er Aron Ernir kominn á amerískan djöful, Dodge Albino. Við verðum að redda mynd af þessu dreka til að deila með þjóðinni. Þetta er nú heldur betur eðalkerra, með sjálfskiptingu og hægt er að opna rúðuna bílstjórameginn. Ef Aron er góður vinur, þá fæ ég bílinn lánaðann í bústaðinn. Ég er með 2 bíla í minni umsjón en báðir eru þeir bilaðir.

Annars verð ég að benda frábæra færslu hjá Aroni um fugl. Smella hér til að lesa shittið.

Sammi sagði mér að taka eitthvað fólk með mér í bústaðinn, svo ef þú vilt koma með vertu þá í bandi. Slepptu því samt, ég nenni ekki að hafa þig með.

Var að muna það núna að ég á eftir að gefa Símon afmælisgjöf. Kannski maður stoppi í sjoppu á leiðinni og splæsi í sykurlaust TAB fyrir strákinn.

Jæja ég má ekkert vera að þessu, á að vera mættur niður í seðlabanka eftir 10 mínútur...


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.08.2007 02:08:30 / Stebbi

Fyndið!

Nenni nú ekki að skrifa neitt núna - Langaði bara benda ykkur á fótboltavideo sem Sigurvin sendi mér sem er sennilega eitt það alfyndnasta sem ég hef á ævi minni séð!

Smellið hér á og skoðið það!

Vil ég sérstaklega benda fólki á gæjann í klippunni á 1:55 mínútu sem tekur skærin eins og enginn sé morgundagurinn!

Njótið..


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.08.2007 18:23:10 / Emmi

Hrósum Samma!

Ég hrósaði Samma áðan. Mér leið mjög vel á eftir. Við það tilefni tjáði Sammi mér að fólk væri ekki nógu duglegt við að hrósa honum og það þykir mér miður.

Sammi á hrós skilið fyrir marga hluti, t.d. fyrir að vera: gáfaður, helskemmtilegur, fjallmyndarlegur, fáranlega kynþokkafullur, marga fallega svipi, að eigi bíl sem heitir hulk, að vera sonur Óla Fjalars, að vera að vestan, og svona mætti lengi telja.

Ég sagði við Samma að hann væri tussugóður andskoti. Hvað vilt þú segja við hann? Sýnum nú samhug í verki og hrósum Samma! Allir að kommenta hrós. Sá sem verður með flest hrós fær vegleg verðlaun frá Samma.

1.. 2.. og BYRJA!

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

19.08.2007 19:20:55 / Þröstur

zzzzzfffffff

Komið þið sæl, það er slæging eftir 10 mínútur. Ekki veit ég hvað er að gerast með mína menn United en þeir eru ekki að ná að dúndra tuðrunni í netið þessa dagana, mér til mikillar leiði, en maður verður bara að vera ánægður með það sem maður hefur, ég á fartölvu og ipod, og kærustu, get nú verið sáttur með það, einnig á ég bróðir sem heitir Emmi, hann kann á munnhörpu, það gleður mig, takk Emmi. Ég á líka frænda sem heitir Stebbi, ZZFF.

Nú er sunnudagskvöld og hver er ekki í stuði þá? Ný vika framundan full af ævintýrum og nýjum verkefnum til að leysa, úúúúújeeeeee! Get ekki beðið, annars verður þetta held ég bara róleg vika hjá mér, nýnemavika að byrja í Háskólanum hérna á norðurslóðum og verður gaman að mæta á morgun og sjá hvað býður manns, en nýnemavikan er á þannig hátt að skólinn er kynntur og tölvukerfið kynnt og bókasafnið líka og svo framvegis, jájá þetta er bara spennandi. Það hefði verið fínt fyrir Aron vin minn að koma í skólann hérna, hann er minni og persónulegri og meiri líkur fyrir Aron að verða aðaltöffarinn í skólanum, en hann er andvaka þessar nætur yfir því að falla í fjöldann í hinum stóra Háskóla Íslands, ég hef trú á þér Aron að þú saltir þennan skóla, rotaðu Pál Skúlason rektor ( ef hann er það ennþá ) og þá ertu góður út veturinn.

Það viðrar vel á Ak núna, Meatloaf söng eitt sinn, "Heaven Can Wait, látum það verða síðustu orðin í bili....eða kannski þessi...eðaaaaa..þessi hérna, Lalli Ben.


» 5 hafa sagt sína skoðun

18.08.2007 11:27:02 / Þröstur

Saturday. August 18.

Ég ætla að byrja að óska nýjum meðlimi klúbbsins til hamingju, sá heppni að þessu sinni er 1 árs og nokkra mánaða gamalt forvitið fyrirbæri sem ber nefnið Valli, einnig þekktur sem Valur eða Valgarð, do you need to work the tan?? Valli is your man.

 Elvis lifir í hjörtum okkur allra, allavega mínu, 30 ár frá dauða hans, ef hann er þá dáinn, sumir halda því staðfastlega fram að hann sé enn á meðal vor. Þáttur var sýndur um hann eitt sinn þar sem ýmislegt undarlegt við fráfall hans kom í ljós, sitt sýnist hverjum en ég held að kallinn sé undir torfu og hvíli í friði.

Ég er fluttur norður aftur og senn hefst háskólagangan mín, vonandi verður það góð ganga. Ég skellti mér á Rush Hour 3 um daginn ásamt Hröbbu og Danni Boy og þessi mynd er alveg æðisleg, Chris Tucker er bara super truper fyndinn gaur, og svalur í senn.

Jæja þá er enski boltinn byrjaður aftur, jibbbííííí, flottir leikir um helgina, kl 4 í dag er slagur þar sem Aron mætir Siðin og Símoni , þegar Aston Villa og Newcastle mætast. Mitt lið Manchester United hafa hikstað aðeins í byrjun en þetta fer allt að koma, það þýðir ekkert að væla heldur að gefa bara í segja komon you RED!!!! GLORY GLORY MAN UTD.

 

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

02.08.2007 20:48:47 / Þröstur

Verslunarmannahelgin

Var kominn með góða færslu þegar mér tókst að stroka hana út, er helvítis pirraður og ætla bara að stikla á stóru.

Ég, Emmi gítar og Sturtu-Stebbi ætlum að skella okkur á Akureyri um helgina.

Emmi fær ekki að spila á gítar.

Það er teiti hjá Hröbbu Jones á morgun, þar ætlum við að sötra bjór og banna Emma að spila á gítar.

Heyrst hefur að Katrín Jones láti sjá sig.

Aron er að fara í fyllerý í kvöld, en veit ekkert hvað hann gerir um hegina, hann er svo fleeeeeppaður kallinn maður.

Ég ætla að mála bæinn fjólubláan um helgina , því að fjólublár er uppáhaldsliturinn minn, "Purple Rain, Purple Rain".

Jæja nenni ekki að hafa þetta lengra, var næstum búinn að klúrða þessari líka, stundum hélt ég að ég væri þroskaheftur, núna veit ég að ég er það.


» 5 hafa sagt sína skoðun

01.08.2007 01:59:13 / Stebbi

Friday the last..

Var að setja inn 2 ný myndbönd frá því á föstudaginn..

Annars vegar af Emma að fikta með vélina mína og svo hinsvegar af Sigurvin taka "Kristján heiti ég Ólafsson" eftirhermuna - Verst að með það video þá var svo dimmt úti að ég náði engri mynd þannig ég setti bara haug af myndum af kallinum með þeirri klippu í staðinn..

En þess má geta að Emmi er hörku "byssuhlaupið upp við eyra, toga í gikkinn og heilinn út um hinumeginn" söngvari .. Takk Emmi!

Emmi að fleeppa..

Sigurvin's debut ..

Njótið..


» 1 hafa sagt sína skoðun


Könnun

Engin könnun í gangi, athugaðu aftur seinna.