07.11.2009 17:13:21 / Emmi
Það sem er að frétta er þetta:

Aron eignaðist litla stelpu í gær ásamt beggu sinni. Stjórn McClane óskar þeim kærlega til hamingju.

Þröstur eignaðist strák fyrir nokkru og ætlar að gifta sig í sumar.

Símon býr með með spúsu sinni til margra ára og er rólegur.

Stebbi býr með spúsi sinni, lítilli stelpu, 2 hundum og einum ketti.

Ég haga mér eins og unglingur og er fullur allar helgar.

Reynið að þroskast strákar....
»
20.10.2009 13:35:05 / Stebbi
Þröstur er hættur að blogga. Við þurfum að byrja blogga af einhverju ráði.
Þröstur er 1300.
Þröstur er að fara gifta sig.
Þröstur er pabbi.
Þröstur er United maður.
Þröstur er að vestan.
Þröstur er búsettur fyrir norðan.
Þröstur er að fara gifta sig.
Þröstur er lyftingarmaður.
Þröstur er að fara gifta sig.
Þröstur er pabbi.
Þröstur er að fara gifta sig.
Og ekkert af þessu nema sumt er að koma mér á óvart. Ég er ánægður fyrir hönd 13 því hann er vinur minn og hinn besti strákur. Stundum soldið skrítinn en besti strákur.
En nú er hans frægðarsól á enda og tímabært að við hinir stígum upp og látum gott af okkur leiða. Við þurfum að taka við kyndlinum af Þresti og gera hann stoltann af okkur! Hann á ekki að þurfa gera allt sjálfur.
Ég legg til að við klifrum Mount Everest. Ég þykist vita hvað Emmi leggur til.
»
02.10.2009 14:23:54 / Þröstur
Samkvæmt mannanafnanefnd þá gæti ég skýrt litla strákinn minn William Walter. Hversu fyndið væri það? William Walter Þrastarson? Steinliggur.
»
22.09.2009 09:54:11 / Þröstur
Já ég er orðinn pápi. Eignaðist son sl .laugardagskvöld. Þar sem ég er ekki með Facebook þá tilkynni ég þetta bara hérna.
»
14.09.2009 09:38:14 / Þröstur
Það er búið að vera í öllum fjölmiðlum í morgun, bæði ljósvaka og prentmiðlum, að mynd með Sly, Arnie og Bruce Willis sé að koma næsta sumar sem ber nafnið The Expendables . Þetta er hreinlega steinaldafrétt fyrir þá sem lesa þessa síðu enda löngu búið að segja frá þessu.
McClane- miðlar, ávallt fyrstir með fréttirnar, allavega einu sinni.
»
12.09.2009 12:14:49 / Þröstur
Hver man ekki eftir dönsku ræningjunum Egon, Kjeld og Benny sem mynduðu hið ógnarsterka þríeyki Olsen- gengið? Þessi snillingar rændu hvern bankann á eftir öðrum og voru megasvalir í leiðinni. Egon með vindilinn í kjaftinum og stjórnaði öllu með harðri hendi, Kjeld með skjalatöskuna, dauðhræddur og lítill í sér og Benny ligeglad með meiru.
Það væri auðvitað rakin snilld ef RÚV myndi sýna þessar myndir aftur, t.d. á sunnudögum í staðinn fyrir íranskar/rúmenskar/rússneskar myndir, sem hefur oftar en ekki álíka spennandi söguþráð og að horfa á mann hafa hægðir. Kannski finnst sumum það skemmtilegt en ég er ekki einn af þeim. Ég vil Egon, Kjeld og Benny.

Egon með vindilinn góða að plokka upp peningaskáp.( ef myndi sést ennþá)
»
07.09.2009 16:08:36 / Stebbi
Hæ.
Nú fer að styttast í jól og barnsburð. Jól hjá öllum og barnsburð hjá tveimur af McClane mönnum klúbbsins. Þetta koma til með að verða mjög töff barn og mjög töff barn með víðtæka þekkingu á bíómyndum. Börnunum hlakkar til að hitta Stebba frænda. Ég ætla verða einskonar "uncle Charlie Harper" í þeirra lífi. Ég ætla kenna þeim alla ósiði, fræða þau um kynlíf á mjög misvísandi vegu ásamt því að kenna þeim póker og reykja vindla. Nema barninu hans Arons. Aron er sprenglærður í þessum fræðum og því fullfær um að kenna slíkt sjálfur.
Ég var á ljósanótt um helgina. Ég var á gangi í miðri þvögunni með Klöru Líf á öxlunum. Hún var alveg gapandi af undrun yfir flugeldunum, mannmergðinni og tívolínu á staðnum. Það heyrðist örugglega ekki múkk í henni í 10 mínútur þar sem hún slefaði af undrun í hárið á mér. Þegar fór að færast ró yfir mannskapinn og síðasta rakettan sprungin stynur hún loks upp úr sér "þetta var bara eins og á sjónum í gamla daga". Blessað barnið og það sem hún hefur þurft að ganga í gegnum (apparently) og það aðeins þriggja ára. Það þarf ekkert að taka það fram að mér fannst þessi lína mjög fyndin. Þá tók mamma hennar hana og setti hana á háhest og fékk að launum tyggjóklessu í hnakkann. Þannig var greinilega farið að þessu á sjónum í gamla daga.
En líður að jólum eins og ég kom inn á hér að ofan. Mig langar í þetta í jólagjöf:
http://cgi.ebay.com/RAMBO-4-IV-BOWIE-KNIFE-Machete-Signature-Edt-1060-Steel_W0QQitemZ220474356955QQcmdZViewItemQQptZLH_DefaultDomain_0?hash=item33554bb4db&_trksid=p3286.c0.m14Hvað langar ykkur í jólagjöf sem þið fáið sennilega ekki?
»
06.09.2009 10:37:03 / Þröstur
Georgía - Ítalía 0-2
0-1 Kakha Kaladze, sjálfsmark (57.)
0-2 Kakha Kaladze, sjálfsmark (67.)
Varð nú bara að skjóta þessu inn. Hversu óheppinn getur einn maður verið? Tvö sjálfsmörk á tíu mínútna kafla. Það er í sjálfu sér einstakur árangur. Kaladse er á leiðinni með liði sínu til landsins þar sem Georgía og Ísland munum etja kappi. Spurning hvort hann haldi uppteknum hætti.
LOL
»
05.09.2009 21:42:54 / Þröstur
Emil, strákskratti! Hann Emil Hallfreðs var alveg að meika það með landsliðinu gegn Norge áðan. Hann hefði átt skora allavega tvö mörk í leiknum. Eins og Eyþór Bjarnasól son sagði réttilega, það ætti senda hann út í skúr að tálga spýtukalla. Svo gæti kannski Ída dregið hann upp í fánastöng, þá gæti Emil séð alla leið til Maríulundar! Mikið væri gaman ef einhver gæti dregið mig upp í fánastöng svo ég gæti séð til Maríulundar, það er svo afskaplega fallegt í Maríulundi.
Farinn í göngutúr kl. 21:40 á laugardagskveldi.
»
04.09.2009 11:48:33 / Þröstur
Þá er það endanlega orðið staðfest, orðrómurinn sem hefur lengi verið á götunni. Gott fólk, nær og fjær.....RAMBÓ 5 er að koma í hús!!! jeeeeeeee!!!
Ég þori engann veginn að gera mér vonir um að Rambó 5 verði jafngóð og númer 4 en Rambó er Rambó. Söguþráðurinn er þá leið að Rambó fer til Mexíkó að bjarga einhverri stúlku frá vondum gæjum..og mér líst vel á það!!
"Live for nothing, or die for something." John Rambo.
»
31.08.2009 21:48:50 / Þröstur
"Já er þetta ekki myndin með Harley Davidsson og Brad Pitt?" spyr Danni mig. Það er næstum því rétt hjá honum en það var Harrison Ford en ekki Harley Davidsson. Góður Danni.
En spurningin er, hvaða mynd er þetta sem Danni Deluxe var að tala um?
»
23.08.2009 17:19:59 / Þröstur
Hver mælti við hvern í hvaða mynd? (nafn á leikurum, ekki persónum takk)
Þar sem gátan er í þyngra lagi ætla ég að varpa fram einni vísbendingu. Hún hljóðar svo: Mennirnir sitja á kaffihúsi að ræða saman, annar er lögga, hinn glæpon.
"I do what i do best. You do what you do best, try to stop guys like me."
»
20.08.2009 17:28:36 / Þröstur
Þeir sem til mín þekkja vita að ég get stundum verið viðundan og stundum þarf að stinga mér í samband, það er nú bara þannig. Ég lenti í tilfelli í dag sem lýsir þöngulhausnum í sjálfum mér ágætlega, sem kemur upp öðru hverju.
Ég var á leiðinni heim úr ræktinni (töööff) þegar Hrabba hringir og biður mig um að fara með læknisvottorð fyrir sig upp á sjúkrahús þar sem hún vinnur. Ég fékk það einfalda verkefni að taka umslag sem var í bílnum og stökkva með það inn. Þegar ég kem fyrir utan sjúkrahúsið gríp ég næsta umslag sem ég sé og stekk upp á aðra hæð sjúkrahúsins.
Ég er megatöff á því þegar ég labba að skrifstofunum, nýbúinn í ræktinni, gel í hárinu og í syngjandi sveiflu, enda sólskin úti. Ég rétti konunni í afgreiðslunni umslagið og segi að ég sé með læknisvottorð frá konunni minni sem er að vinna hérna. Konan tekur við bréfinu og er eitthvað voða hissa og grandskoðar þetta. "Er þetta læknisvottorð?" spyr hún. Ég segi að svo sé og að ég átti að koma með það hingað. Hún skoðar umslagið betur og segir svo. "Átti þetta umslag örugglega að koma hingað? það er eins og það sé filma í þessu". Ég skoða umslagið betur með henni og sé að það er rétt hjá henni, ég hafði tekið umslag úr bílnum merkt Bónus sem innihélt ljósmyndafilmu og einnota myndavél í þokkabót, sem fer nú ekkert lítið fyrir. Töluvert langt frá læknisvottorði.
Ég rölti með skottið á milli lappana og náði í rétta umslagið og tókst fyrir rest að leysa þetta einfalda verkefni í annarri tilraun.
»
19.08.2009 15:46:10 / Þröstur
...hún er í rassgatinu á þér!
Ég.....
... fékk mér enska boltann í gær og er hamingjusamur maður.
.... er afar óhandlaginn húsbóndi, en bæti það upp á öðrum sviðum.
.....er kominn í jólaskap.
......verð faðir innan mánaðar
....á einn frænda í Njarðvík
.....var lélegur í stærðfræði í grunnskóla
....er sjarmör
.... er líka blóðmör
.....ætla að grilla pylsur í kvöld
....hef aldrei farið í takkaskóna af Hemma Gunn, en skal gera það einn daginn!
....þyki gamaldags í hugsunarhætti oft á tíðum
...er samt bara 26 ára
...er rómantískur.
Já, svona er ég í dag. Megatöff.
»
12.08.2009 16:54:52 / Símon
Kallinn kominn á eyjuna
Að finna flottustu meyjuna
Skoða yfir flóruna
Spotta mestu hóruna
Ætla‘ð takana aftan frá
þann'að á henni megi sjá
Læt hana finna fyrir því
Þangað til blæðir og þá ég sný
Legg hana í trúbbann og fer af stað
Kemst ekkert áfram, það er eitthvað að
Kannski of stór sé böllurinn
Þó fjölfarinn sé völlurinn
Vill klára verkið þótt erfitt sé
Þetta er nú einusinni Linda P
Ég öskra: ég elska eyjuna
Um leið og ég sprauta yfir meyjuna.
Höf. Simmi Young
Emmi þú verður svo að semja lag við textann og þá erum við good to go.....
P.s þetta er ábyggilega fyrsta færslan mín á þessa síðu
»
Síður:
1 2 3 ...
31